Búið er að opna aftur fyrir flugumferð á Gatwick-flugvelli í London eftir tímabundna lokun flugvallarins síðdegis vegna grunsemda um að annar dróni væri á sveimi yfir flugvallarsvæðinu.
Áður var flugvellinum lokað frá miðvikudagskvöldi til föstudagsmorguns vegna drónaflugs yfir vellinum. Lokunin hafði gríðarleg áhrif á nærri þúsund flugferðir og leitar breska lögreglan enn þeirra sem hafa flogið dróna, eða drónum, yfir flugvellinum.
Tilkynning vegna dróna barst klukkan 17:10 í dag. Talsmaður flugvallarins sagði að strangar reglur væru nú í gildi en öruggt væri að fljúga til og frá flugvellinum. Síðdegis þurfti nokkrar flugvélar að hringsóla yfir flugbrautunum þegar tilkynningin var könnuð.