Brett McGurk, sérfræðingur bandarískra stjórnvalda í málefnum Ríkis íslams, hefur sagt upp störfum í kjölfar ákvörðunar Donalds Trump Bandaríkjaforseta að draga allt herlið Bandaríkjanna frá Sýrlandi.
McGurk hugðist láta af störfum á næsta ári en ákvað að flýta því sökum ákvörðunar Trump. McGurk hefur talað fyrir því að Bandaríkin haldi áfram að vinna gegn hryðjuverkasamtökunum Ríki íslams í Sýrlandi.
„Við viljum vera til staðar og tryggja að stöðugleikanum sé viðhaldið á þessum svæðum,“ sagði McGurk fyrir fáeinum dögum.
Uppsögn McGurk kemur í kjölfar uppsagnar Jim Mattis, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sem sagði af sér embætti í fyrradag en Mattis hafði greint frá því að enn sé mikið verk óunnið í Sýrlandi.