Franska vikublaðið Le Monde baðst í dag afsökunar á umdeildri forsíðu síðasta tölublaðs síns sem skartaði mynd af Emmanuel Macron, forseta Frakklands, sem ýmsum lesendum blaðsins töldu minna á áróðursmyndir þýskra nasista á sínum tíma.
Fram kemur í frétt AFP að Le Monde hafi verið harðlega gagnrýnt fyrir forsíðuna á netinu og af þingmönnum í flokki Macrons. Þykir myndin minna á áróðursmyndir af Adolf Hitler, leiðtoga þýskra nasista.
Ritstjóri Le Monde, Jerome Fenoglio, sagði hugmyndina hafa verið sótta í rússneska hugsmíðahyggju frá fyrri hluta 20. aldarinnar en ekki til þýskra nasista. Hann sagði hins vegar að óskynsamlegt hefði verið að samþykkja forsíðuna.