„Þetta er sorgardagur fyrir blaðamennsku en góður dagur fyrir landið,“ skrifaði Donald Trump Bandaríkjaforseti á Twitter eftir að Robert Mueller, sérstakur saksóknari, greindi frá því að frétt Buzzfeed um að Trump hefði sagt fyrrverandi lögmanni sínum að ljúga fyrir þingi væri ekki nákvæm.
Trump birti nokkur tíst og endurbirti önnur þar sem Buzzfeed var gagnrýnt harðlega fyrir fréttaflutninginn.
Þar kom fram að Michael Cohen, fyrrverandi lögmaður Trump, hefði sagt þeim sem unnu að rannsókn á tengslum Trump við Rússa í aðdraganda forsetakosninganna að hann ætti að ljúga um áætlanir byggingar Trump Tower í Moskvu.
Embætti sérstaks saksóknara sendi frá sér yfirlýsingu um að fréttin væri ekki nákvæm en ritstjóri Buzzfeed, Ben Smith, segir á Twitter að hann standi við fréttina.
„Falsfréttir eru óvinir fólksins,“ skrifaði Trump meðal annars í Twitter-færslum sínum. Hann hafði áður sagt að Cohen hafi logið til að stytta fangelsisvist sína en lögmaðurinn var dæmdur í fangelsi fyrir að ljúga til um verkefnið í Moskvu sem og fyrir skattsvik og brot gegn lögum um fjármál kosningaherferða.