Að minnsta kosti 65 létust í árás talibana á bækistöðvar leyniþjónustunnar í Wardak-héraði í Afganistan í gær.
Vígamennirnir sprengdu upp bifreið sem var hlaðin sprengiefni fyrir utan húsið og fylgdu tilræðinu eftir með því að skjóta á allt sem fyrir þeim varð.