Mikil skelfing greip um sig á skemmtistaðnum Blå í Grünerløkka-hverfinu í Ósló aðfaranótt sunnudagsins 9. júlí 2017 þegar 25 ára gamall maður dró þar upp 45 kalíbera hálfsjálfvirka skammbyssu af gerðinni Norinco NP30 og hóf skothríð fyrir utan, innan um fjölda gesta staðarins. Skaut hann alls að sjö manns og hlutu fjórir þeirra skotsár en allir lifðu þó af, í einu tilfelli skildi það þó milli feigs og ófeigs að fórnarlambið komst skjótt undir læknishendur.
Árásarmaðurinn, sem var undir áhrifum áfengis og fíkniefna og hefur meint tengsl við samfélag norskra nýnasista, var handtekinn og 8. júní í fyrra var honum birt ákæra þar sem honum voru gefnar að sök sjö tilraunir til manndráps.
Dómur féll í þessu máli í gær og var það niðurstaða héraðsdóms að maðurinn skyldi sæta ellefu ára varðveislu (n. forvaring) sem er réttarúrræði þar sem ákveðinn lágmarksárafjöldi er afplánaður en hægt að framlengja fangelsisdvöl þyki dómara, að sérfræðinga yfirsýn, ekki óhætt að hleypa brotamanninum út í samfélagið á ný. Hryðjuverkamaðurinn Anders Behring Breivik hlaut sams konar dóm þar sem varðveislan var til 21 árs en lágmarkstíminn ákveðinn tíu ár.
Sá sem dæmdur var í gær á sér einnig sögu um að hafa stungið annan mann við Blitz-húsið, þekkt athvarf pönkara í Ósló, skallað lögregluþjón og hótað fangavörðum sínum lífláti í mars 2016 þegar hann afplánaði dóm í Telemark-fangelsinu í Skien og fangavörður bað hann vinsamlegast um að hafa sig inn í fangelsið af útivistarsvæðinu. Því svaraði fanginn: „Heigulstíkin þín, þú veist ekki hver ég er. Ég skal finna þig þegar ég slepp út eftir þrjá mánuði.“
Við rekstur málsins sagðist hann iðrast gjörða sinna mjög og hefði málið allt tekið mikinn toll af andlegu atgervi hans. Ástæða hans fyrir skotárásinni var að dyraverðir neituðu að hleypa honum inn á staðinn. Auk fangelsisdómsins var sakborningurinn dæmdur til að greiða fórnarlömbum sínum samtals tæpar 600.000 krónur (8,5 milljónir íslenskar) í skaðabætur.