Bresk yfirvöld hafa bannað allt flug þota af gerðinni Boeing 737 MAX 8 í lofthelgi sinni að því er fram kemur í breska dagblaðinu Independent. Með ákvörðun sinni hafa bresk flugmálayfirvöld gripið til sambærilegra aðgerða og gert hefur verið í Ástralíu, Singapúr, Kína, Indónesíu og Malasíu.
Þota af þeirri gerð hrapaði í Eþíópíu á sunnudag. Önnur þota af sömu gerð hrapaði við Indónesíu í október. Báðar voru vélarnar nýjar og hröpuðu skömmu eftir flugtak.
Rannsókn á flugslysinu í Eþíópíu er enn í fullum gangi. 157, allir sem voru um borð, létust í slysinu.
Talsmaður breskra flugmálayfirvalda (CAA) segir í yfirlýsingu að gögn liggi enn ekki fyrir úr flugritum vélar Ethiopian Airlines um hvað olli slysinu og því sé um tímabundna varúðarráðstöfun að ræða. Gefin hafi verið út fyrirmæli um að engin vél af þessari gerð geti lent, tekið á loft eða flogið innan breskrar lofthelgi.
Þota Ethiopian Airlines var á leið frá Addis Ababa í Eþíópíu til Naíróbí í Kenía. Aðeins sex mínútum eftir flugtak hvarf hún af ratsjám.
Vísbendingar eru um að hrap þotu Lion Air í október megi rekja til boða frá skynjurum sem eru af annarri gerð en flugmenn höfðu átt að venjast úr eldri gerðum vélarinnar. Allir sem voru um borð í vélinni, 189 manns, létust í slysinu.
Statement: Boeing 737 MAX Aircraft.
— UK Civil Aviation Authority (@UK_CAA) March 12, 2019
The UK Civil Aviation Authority has issued instructions to stop any commercial passenger flights from any operator arriving, departing or overflying UK airspace.
You can read the full update online: https://t.co/xa1BUR7wJk pic.twitter.com/AsmhLElF0K