Dennis Muilenburg, forstjóri Boeing, segir það rangt að rekja megi mannskæð flugslys Boeing 737 Max-véla í Indónesíu og Eþíópíu til mistaka í tæknilegri hönnun flugvélanna.
Allar Max-vélar Boeing hafa verið kyrrsettar frá því að farþegaþota þeirrar gerðar í eigu Ethiopian Airlines hrapaði 10. mars sl. Sambærilegt flugslys átti sér stað í Indónesíu í október, en 346 manns létu lífið í flugslysunum tveimur.
Muilenburg viðurkenndi þó að stýrikerfi vélanna sem hröpuðu hefðu gefið skynjurum rangar upplýsingar með þeim afleiðingum að kerfið ýtti nefi vélanna niður.
„Það eru engin tæknileg mistök,“ sagði Muilenburg þar sem hann kynnti ársfjórðungsskýrslu fyrirtækisins í dag. „Við þekkjum okkar flugvél. Við vitum hvernig hún var hönnuð, hvernig hún fékk vottun og höfum fulla trú á vélinni.“
Hann bætti því við að „það sem ekki var gert“ hafi átt þátt í slysunum tveimur og virðist gefa í skyn að flugmenn í vélunum sem fórust hefðu átt að slökkva á kerfinu sem ýtti nefi flugvélanna niður.