Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur boðað til kosninga 5. júní. „Ég vil nota allan minn styrk, hæfni og reynslu til að halda áfram að leiða Danmörku,“ sagði Rasmussen í ræðu í danska þinginu. Hann hafði þá öllum að óvörum beðið um að fá orðið í þinginu og tilkynnti að kjördagur hefði verið fastsettur.
Þess hefur verið beðið um nokkuð skeið en í Danmörku er það í verkahring forsætisráðherra að boða til kosninga, sem þurfa að fara fram í seinasta lag 17. júní er núverandi kjörtímabili lýkur. Skoðanakannanir síðustu misserin benda til þess að að bandalag vinstriflokka nái meirihluta í kosningunni og er það talin ástæða þess að Løkke, sem er formaður hægriflokksins Venstre, boðar til þeirra jafnseint og raun ber vitni.
Í ræðu sinni fór forsætisráðherrann yfir afrek stjórnarinnar síðasta kjörtímabil. Vakti hann meðal annars athygli á að 10.000 ný störf hefðu orðið til í landinu. „Aldrei í sögunni hafa jafn mörg störf orðið til,“ hefur danska ríkisútvarpið DR eftir Løkke „Það leiðir að heilbrigðum efnahag, það er alveg skýrt. Það þarf jú að afla peninganna áður en maður eyðir þeim. Þessi heilbrigði efnahagur þýðir að við getum notað meira fé til samfélagsins.“
5. júní er stjórnarskrárdagur Danmerkur (Grundlovsdagen) en á þeim degi árið 1849 fengu Danir stjórnarskrá þar sem einræði konungs var afnumið og lýðræði komið á. Dagurinn er það næsta sem Danir komast þjóðhátíðardegi en hann er þó ekki almennur frídagur, þótt oft sé veitt frí eftir hádegi.
Sósíaldemókrötum er spáð 27,5 prósenta fylgi, litlu meira en í síðustu kosningum en Venstre, flokki Løkke, er spáð tæpum 20 prósentum, álíka og í síðustu kosningum. Helstu tíðindi úr könnunum eru þau að fylgi Danska þjóðarflokksins (DF) hrynur. Flokkurinn, sem ver ríkisstjórn Løkke falli, mælist með 12,2 prósenta fylgi, um tíu prósentustigum lægra en í kosningunum 2015.
Þá er Sósíalistaflokknum, Radikale Venstre og Einingarlistanum (Enhedslisten) öllum spáð fylgisaukningu, en flokkarnir þrír tilheyra rauðu blokkinni ásamt Sósíaldemókrötum. Samanlagt mælast flokkar rauðu blokkarinnar með 55 prósenta fylgi, og 99 þingsæti, en bláa blokk forsætisráðherrans með 44,4 prósent og 76 sæti.
Ef fer sem horfir verður Mette Frederiksen, formaður Sósíaldemókrata, næsti forsætisráðherra Danmerkur en hún tók við formennsku af Helle Thorning-Schmidt sem lét af embætti eftir kosningaósigurinn 2015.
Frederiksen þykir íhaldssamari en forveri hennar. Hennar fyrsta verk var að breyta nafni flokksins aftur í Socialdemokratiet en flokkurinn hafði frá árinu 2002 notast við nafnið Socialdemokraterna (Sósíaldemókratar) líkt og systurflokkurinn í Svíþjóð. Þá hefur útlendingastefna flokksins orðið harðari og er það talið eiga sinn þátt í að flokkurinn hefur sótt fylgi á ný frá Þjóðarflokknum.