Hátt í 50 þekktir Hollywoodleikarar skora á stjórnvöld í Georgíu-ríki í Bandaríkjunum að samþykkja ekki fyrirhugaða fóstureyðingarlöggjöf sem hefur verið lögð fram. Einnig hóta þeir að starfa ekki í ríkinu ef hún nær fram að ganga. BBC greinir frá.
Löggjöfin kveður á um að banna skuli fóstureyðingar í þeim tilfellum þar sem hjartsláttur greinist en alla jafna greinist hann í sex vikna gömlum fóstrum. Ef hún verður samþykkt yrðu þetta á meðal ströngustu laga um fóstureyðingar sem eru í gildi.
Brian Kemp, ríkisstjóri Georgíu, lagði fram frumvarpið nýverði. Áætlað er að þetta taki gildi 1. janúar næstkomandi en viðbúið er að erfitt verði að koma löggjöfinni í gegnum þingið.
Áætlað er að sjónvarpsþáttagerð og kvikmyndatökur skili Georgíu árlega um 2,7 milljörðum dollara, samkvæmt upplýsingum frá ríkisstjóranum.
Vinsælar myndir á borð við, Black Panther og The Hunger Games og sjónvarpsþættir Stranger Things og The Walking Dead voru teknir upp þar.
Stjörnur á borð við Alyssa Milano, Amy Schumer, Christina Applegate, Alec Baldwin og Sean Penn skrifuðu undir áskorunina í mars.
„Við viljum vera áfram í Georgíu,“ segir í bréfinu. „En við munum ekki gera það hljóðlaust. Við í okkar starfsstétt munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja öryggi kvenna í ríkinu,“ segir ennfremur.
SO FUCKED UP. #HB481 https://t.co/hDm45AprxW
— Alyssa Milano (@Alyssa_Milano) May 8, 2019
J.J. Abrams, Jordan Peele Condemn #Georgia Abortion Law, Will Donate Show Proceeds to Fight It
— Piper Perabo (@PiperPerabo) May 11, 2019
“So far, at least five productions companies have pledged to not shoot any projects in the state until the law is overturned” #HB481 #ReclaimGeorgiahttps://t.co/knerQR0LyN via @thr