Yfirvöld í Þýskalandi hafa hvatt gyðinga þar í landi til að forðast að bera kollhúfur á meðal almennings á ákveðnum svæðum í landinu. Uppgangur hægri-öfgamanna og nýnasista í Þýskalandi hefur verið mikill undanfarin misseri og er farinn að valda mörgum áhyggjum.
Greinileg fjölgun var á and-semískum afbrotum á síðasta ári. Opinberar tölur sýna að alls voru 1.646 hatursglæpum beint gegn gyðingum árið 2018 sem er 10% hærri tala en skrásett var árið áður.
Líkamsárásum gegn gyðingum í Þýskalandi fjölgaði einnig yfir sama tímabil, en fjöldi ofbeldisfullra árása hækkaði úr 37 árið 2017 í 62 árið 2018.
Eftir því sem fram kemur á vef BBC sagði dómsmálaráðherra Þýskalands, Katarina Barley, að þessi aukni fjöldi and-semískra glæpa væri „skammarlegur fyrir land okkar.“
Stuðningur við þjóðernissinnaða flokka hefur vaxið í Þýskalandi undanfarin ár og nú er svo komið að hægriflokkurinn Annar valkostur fyrir Þýskaland (AfD) er orðinn stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn á þýska þinginu. Flokkurinn leggst gegn innflytjendastefnu þýskra yfirvalda en segist ekki and-semískur.
Samt sem áður hafa fjöldi ummæla flokksmanna, meðal annars ummæli um Helförina, kallað fram gagnrýni frá gyðingum í Þýskalandi og stjórnmálamönnum annarra flokka.
Fjöldi gyðinga hafa varað við því að auknar vinsældir öfga-hægriflokka hafi alið á gyðingaandúð og hatri á öðrum minnihlutahópum í Evrópu.