Á þriðja tug manns slasaðist er öflug sprenging varð í fjölbýlishúsi í miðbæ Linköping í Svíþjóð í morgun. Sprengjusveitin var kölluð til og hefur lögregla og slökkvilið verið með mikinn viðbúnað á vettvangi og var stóru svæði í næsta nágrenni lokað af.
Sænska ríkisútvarpið SVT hefur eftir lögreglu að vitað sé til þess að 25 manns hið minnsta hafi slasast í sprengingunni. Enginn þeirra er þó sagður alvarlega slasaður.
„Við erum með mikið af fólki á vettvangi,“ hefur SVT eftir Björn Öberg, talsmanni lögreglu. „Nú snýst þetta um að loka af svæðinu og hleypa engum þar inn sem ekki eiga að vera.“
Það var klukkan níu í morgun sem símtöl tóku að berast sænsku neyðarlínunni vegna sprengingarinnar og eru umtalsverðar skemmdir sýnilegar á svölum og gluggum í þessu fimm hæða húsi, en þar eru bæði íbúðir og fyrirtæki. Einnig urðu nokkrar skemmdir á nærliggjandi byggingum.
Ekki liggur enn fyrir hvað olli sprengingunni, en ekkert gas er þó í húsinu að sögn talsmanns eiganda hússins.
Lögregla útilokar þó ekki að um óhapp sé að ræða, að því er SVT hefur eftir Åsa Willsund, talskonu lögreglunnar. Á þessu stigi vinnur lögregla þó út frá þeim forsendum að almannahætta stafi af.
Hæsta viðbúnaðarstigi hefur verið lýst yfir á háskólasjúkrahúsinu í Linköping og er einnig aukinn viðbúnaður á öðrum sjúkrahúsum í héraðinu.