Verð á olíu hefur hækkað um sex prósent í dag í kjölfar fregna af því að dróni á vegum bandaríska hersins var skotinn niður af Írönum. Donald Trump Bandaríkjaforseti brást við á Twitter og sagði Írana hafa gert mikil mistök.
Iran made a very big mistake!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) June 20, 2019
Dróninn var skotinn niður með eldflaug íranska hersins þar sem hann var í alþjóðlegri lofthelgi yfir Hormuz-sundi. Írönsk yfirvöld segja aftur á móti að dróninn hafi verið skotinn niður í íranskri lofthelgi. Rúmur þriðjungur af allri hráolíu, sem flutt er með skipum í heiminum, fer um Hormuz-sund, m.a. um 80% af allri olíu sem flutt er til Japans.
Frá tísti Trumps hefur tunna af West Texas Intermediate-hráolíu hækkað um 6,03 prósent og kostar tunnan rúmlega 57 dollara, eða sem nemur rúmum 7.000 krónum.
Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hefur gagnrýnt framgöngu forsetans í milliríkjasamskiptum sínum við Íran og segir hann auka líkurnar á hernaðarátökum, sem er einmitt talin ástæða hækkunar á olíuverði.