Angela Merkel, kanslari Þýskalands, segir að sér líði vel, þrátt fyrir tvö skjálftaköst með stuttu millibili síðustu daga sem hafa vakið upp spurningar um heilsufar kanslarans.
Merkel sást hríðskjálfa í annað sinn við athöfn í Berlín í fyrradag, átta dögum eftir að svipað atvik átti sér stað.
Áhyggjur af heilsu Merkel vöknuðu eftir að hún titraði og skalf við hlið Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, 18. júní. Merkel sagðist vera við góða heilsu og sagði skjálftann vera til kominn vegna uppþornunar.
Merkel er meðal leiðtoga sem sækja ráðstefnu G20 ríkjanna í Osaka um helgina. Aðspurð hvað orsakaði skjálftaköstin og hvort hún væri búin að leita læknisaðstoðar sagði Merkel að hún „hefði ekki frá neinu sérstöku að segja,“ að því er fram kemur í frétt BBC.
Dagskrá Merkel hefur verið þétt síðustu daga en hún hefur átt tvíhliða fundi með Donald Trump Bandaríkjaforseta, Vladimír Pútín Rússlandsforseta og Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta.
Talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar, Steffen Seibert, birti myndskeið á Twitter þar sem Merkel flytur ræði um öfgastefnu, valdeflingu kvenna og loftslagsbreytingar. Í myndskeiðinu er Merkel róleg og yfirveguð og laus við allan skjálfta.