Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að bandaríski sjóherinn hafi skotið niður íranskan dróna í Ómanflóa. Bandaríska herskipið USS Boxer „beitti varnarviðbrögðum“ þegar dróninn var í um 914 metra fjarlægð frá herskipinu og hörfaði ekki þrátt fyrir skipanir áhafnar þess efnis. BBC greinir frá.
Samkvæmt upplýsingum frá írönskum yfirvöldum hafa þau engar upplýsingar um að dróni úr þeirra eigu sé týndur.
Á sama stað í júní síðastliðnum skaut eldflaug íranska hersins niður dróna í eigu Bandaríkjahers. Ríkin greinir á um hvar nákvæmlega hann var þegar hann var skotinn niður. Írönsk yfirvöld segja að dróninn hafi verið skotinn niður í íranskri lofthelgi en ekki í alþjóðlegri lofthelgi Ómanflóa eins og bandarísk yfirvöld fullyrða.
Mikill titringur er í samskiptum ríkjanna. Síðasta sunnudag viðurkenndu írönsk yfirvöld að þau hefðu kyrrsett „útlenskt skip“ og 12 manns í áhöfn þess vegna gruns um að smygla olíu í Persaflóa.