Rapparanum A$AP Rocky hefur verið sleppt úr haldi í Svíþjóð. Hann er á leiðinni heim til Bandaríkjanna og Donald Trump Bandaríkjaforseti getur tekið gleði sína á ný. Sem hann gerir. Lífverðir A$AP eru einnig lausir úr haldi.
Réttað hefur verið yfir A$AP síðustu daga vegna ásakana um alvarlega líkamsárás. Í réttinum í dag var kveðið á um að rapparanum skyldi sleppt úr haldi og að hann skyldi frjáls ferða sinna, alltént þar til úrskurður dómara lægi fyrir. Það verður 14. ágúst. Má skilja þessa atburðarás sem svo að ólíklegt hlýtur að teljast að hann verði fundinn sekur. Hann hafði lýst yfir sakleysi sínu og sagst hafa stigið inn í ógnvænlegar aðstæður til að stilla til friðar.
View this post on InstagramA post shared by PRETTY FLACKO (@asaprocky) on Aug 2, 2019 at 11:39am PDT
Trump fagnar nýfengnu frelsi A$AP mjög. Hann hefur farið mikinn á Twitter síðustu vikur og tjáð þá ósk sína að rapparinn verði látinn laus úr prísundinni í Svíþjóð. Hann hefur meðal annars farið þess sérstaklega á leit við Stefan Löfven, forsætisráðherra Svía.
A$AP Rocky released from prison and on his way home to the United States from Sweden. It was a Rocky Week, get home ASAP A$AP!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) August 2, 2019
A$AP, sem er þrítugur og heitir réttu nafni Rakim Mayers, var handtekinn vegna líkamsárásar 3. júlí ásamt þremur öðrum eftir slagsmál á götum Stokkhólms 30. júní. Að honum hafi verið sleppt í dag þýðir sennilega að annaðhvort að hann verði ekki dæmdur sekur eða að minnsta kosti að fangelsisdómurinn verði skilorðsbundinn.