Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur lýst stuðningi sínum við að Rússar fái að snúa aftur í G8, hóp átta helstu efnahagsvelda heims, sem eru þó aðeins sjö talsins eftir að Rússum var vikið úr hópnum árið 2014.
Trump lét þessa skoðun sína í ljós fyrir fund ríkjanna sjö í Biarritz í Frakklandi í dag og sagði það vera „mun meira viðeigandi“ að hafa Rússa með í hópi efnahagsveldanna.
„Þetta ættu að vera G8, því margt sem við ræðum um hefur að gera með Rússland,“ sagði Trump.
Rússum var vikið úr G8 í kjölfar þess að þeir innlimuðu Krímskaga árið 2014. Trump segir ástæðu brottvikningarinnar þó vera þá að Pútín hafi leikið á Barack Obama, forvera Trump, og því hafi Obama viljað Rússa úr hópnum.