Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands, bað Pólverja fyrirgefningar vegna síðari heimsstyrjaldarinnar við minningarathöfn í pólsku borginni Wielun í morgun þar sem fyrstu sprengjurnar í styrjöldinni féllu fyrir 80 árum.
„Ég lýt höfði fyrir fórnarlömb árásarinnar í Wielun. Ég lýt höfði fyrir pólsk fórnarlömb þýsku harðstjórnarinnar. Og ég bið um fyrirgefningu ykkar,“ sagði Steinmeier á þýsku og pólsku.
Í dag eru 80 ár liðin síðan seinni heimsstyrjöldin hófst, mannskæðasta styrjöld í sögunni. Talið er að 70 til 85 milljónir hafi farist af völdum stríðsins, sem stóð yfir í um sex ár, frá 1939 til 1945. Um það bil sex milljónir Pólverja létu lífið í stríðinu.
Steinmeier og Andrzej Druda, forseti Póllands, lögðu blómsveig að minnisvarða um heimsstyrjöldina. Síðar í dag munu þeir hitta þá sem lifðu sprengjuárásirnar í Wielun af, á þessum degi fyrir 80 árum.
Druda sagði árásir nasista í styrjöldinni grimmdarverk og stríðsglæp. „Ég er handviss um að þessi minningarathöfn muni styrkja vinabönd pólsku og þýsku þjóðarinnar,“ sagði hann jafnframt og þakkaði Steinmeier fyrir að vera viðstaddur. „Það voru Þjóðverjar sem frömdu þessa glæpi gegn mannkyni í Póllandi. Sem forseti Þýskalands get ég tjáð þér að við munum aldrei gleyma því,“ sagði Steinmeier.
Um 250 þjóðhöfðingjar og ráðherrar eru í Póllandi þar sem tímamótanna er minnst. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er þeirra á meðal og verður hann viðstaddur minningarathöfn í Varsjá í dag ásamt öðrum þjóðarleiðtogum.
Athöfnin verður fjölmenn og mun Guðna ekki gefast kostur á að hitta flokksleiðtoga eða funda einslega með stjórnmálamönnum, en hann vill þó nýta minningarviðburðinn til að vekja athygli á skuggahliðum öfga og þjóðrembings, og samdi af því tilefni yfirlýsingu sem gefin verður út á vef forsetaembættisins, forseti.is, síðar í dag.