Að minnsta kosti einn er látinn og tíu eru slasaðir eftir að maður réðst að fólki með sverði í iðnskóla í Kuopio í Finnlandi.
Skólinn er staðsettur í verslunarmiðstöð í Kuopio, en hún var rýmd í kjölfar árásarinnar. Lögregla hefur handtekið einn og samkvæmt sjónarvottum beitti hún skotvopnum við handtökuna.
Af þeim tíu sem slösuðust eru tveir alvarlega slasaðir, en að öðru leyti fást litlar upplýsingar um líðan þeirra.
Samkvæmt lögreglu er hættuástand liðið hjá og búið er að boða blaðamannafund vegna árásarinnar klukkan fimm að staðartíma.
Fréttin hefur verið uppfærð með nýjustu upplýsingum