Glæpagengi í Stokkhólmi og þar í kring eru nú orðin 50 talsins og eru konur farnar að taka virkari þátt í skipulagðri glæpastarfsemi í Stokkhólmi en áður. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá lögregluyfirvöldum í Svíþjóð. Fréttavefurinn The Local greinir frá þessu.
Samkvæmt skýrslunni eru 20 gengjanna ný en um 30 þeirra hefur áður verið fjallað í fyrri sambærilegum skýrslum.
Árið 2017 voru gengin 47 talsins en 39 talsins árið 2015. Lögreglan hefur gefið út að nú taki um 1.500 manns þátt í skipulagðri glæpastarfsemi í Stokkhólmi. Hlutfall kvenna í þessum fjölda hefur aukist síðan árið 2017.
„Sumir hópanna hafa horfið og aðrir bæst við,“ segir Palle Nilsson, yfirmaður sænsku leyniþjónustunnar.
Í skýrslunni segir að konur takist frekar á við að skipuleggja glæpi, framkvæma þá og styðja við glæpagengi en áður.
Meðalaldur þeirra sem taka þátt í glæpagengjunum fer lækkandi en í þeim flestum eru einstaklingar sem eru yngri en sextán ára gamlir.
Í skýrslunni er sagt frá auknum hreyfanleika meðal hópanna sem verður til þess að fleiri taka þátt í nokkrum glæpagengjum en áður. „Þá eru skýr merki þess að glæpagengi séu farin að vinna meira saman, bæði innanlands og alþjóðlega,“ segir í skýrslunni.
Mörg gengjanna hafa greiðan aðgang að vopnum en fimmtán manns hafa orðið fyrir banvænum byssuskotum í Stokkhólmi á fyrstu níu mánuðum þessa árs.
Í skýrslunni er einnig bent á að glæpagengin séu nú líklegri til þess að stunda mannrán en áður.