Kúrdar segja almenna borgara hafa fallið í loftárásum Tyrkja sem hófust í norðausturhluta Sýrlands fyrr í dag. Að minnsta kosti tveir létust og tveir særðust í loftárás tyrkneskra hersveita á bæinn Ras al-Ain, samkvæmt upplýsingum frá Sýrlensku lýðræðissveitunum (SDF). Þá hafa hundruð almennra borgara flúið yfir landamærin í norður Sýrlandi og yfir til Tyrklands.
Þá hefur SDF heimildir fyrir því að 25 tyrkneskar herþotur hafi tekið þátt í árásinni og að skotmörkin hafi verið sextán talsins, víðs vegar á landamærunum.
Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti greindi frá upphafi aðgerða Tyrklandshers á Twitter og segir hann aðgerðirnar, sem hann kallar „Friðarvorið“, beinast gegn hryðjuverkamönnum á svæðinu í norðurhluta Sýrlands. Ætlunin sé að koma í veg fyrir svæði hryðjuverkamanna rétt við tyrknesku landamærin og að koma á friði á svæðinu.
„Við munum virða landsvæði Sýrlands og frelsa íbúa svæðisins undan hryðjuverkamönnum,“ bætir Erdogan við færslu sína.
Frönsk stjórnvöld hafa fordæmt innrásina og Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, krefst þess að Tyrkir hætti öllum hernaðaraðgerðum á svæðinu þegar í stað.
Amelie de Montchalin, ráðherra Evrópumála í Frakklandi, segir Frakka, Þjóðverja og Breta vera að undirbúa sameiginlega yfirlýsingu þar sem aðgerðir Tyrkja verða fordæmdar.
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, treystir á að Tyrkir haldi aftur af sér og tryggi að þeir áfangar sem hafa náðst gegn vígamönnum íslamska ríkisins í Sýrlandi verði ekki að engu. Soltenberg greinir frá því í færslu á Twitter að hann muni ræða málin við Erdogan á föstudag.