Hvað verður um hana núna? Þetta er spurning sem margir hafa spurt sig eftir að fregnir bárust af því í gær að konungur Taílands, Maha Vajiralongkorn eða Rama X, hefði svipt hjákonu sína, Sineenat Wongvajirapakdi, sem gengur undir gælunafninu Koi, öllum titlum.
Að auki var hegðun hennar fordæmd opinberlega og ástæðan var sögð vera vanþakklæti og óhófleg metorðagirnd hennar. Þetta var ekki útskýrt nánar. Vegna taílenskra laga, sem kveða á um virðingu fyrir konungsfjölskyldunni, má ekki fjalla opinberlega í Taílandi um hegðun eða embættisfærslur konungs.
Koi starfaði áður sem flugmaður, hjúkrunarfræðingur og lífvörður. Hún var fyrsta konan í um 100 ár sem fékk titilinn „Konunglegur maki“ í Taílandi, en titilinn fékk hún á 67 ára afmælisdegi konungs í sumar. Það er ekki óþekkt í sögunni að Taílandskonungar taki sér opinberlega hjákonur.
BBC, breska ríkisútvarpið, fjallar um málið í dag og meðal annars fyrri hjónabönd konungsins, sem kvæntist fjórðu eiginkonu sinni, Suthidu drottningu, í vor. Hann kvæntist fyrstu eiginkonu sinni, Soamsawali prinsessu, árið 1977 og þau skildu 1993. Önnur eiginkona hans, Sujarinee Vivacharawongse, flúði til Bandaríkjanna árið 1996 og í kjölfarið fordæmdi hann hana opinberlega.
Árið 2014 svipti hann þriðju eiginkonu sína, Srirasmi Suwadee, öllum titlum og meinaði henni aðgang að höll þeirra. Ekki er vitað um afdrif hennar. Sonur þeirra, sem nú er 14 ára, hefur síðan þá verið alinn upp af föður sínum og foreldrar Srirasmi voru handteknir fyrir óvirðingu gagnvart konungsfjölskyldunni.
Rama X varð konungur eftir að faðir hans, Bhumibol Adulyadej, lést árið 2016. Í umfjöllun BBC er rætt við Tamara Loos, sem er prófessor í sögu og Taílandsfræðum við Cornell-háskóla. Hún segir að með framferði sínu sé konungur að senda skýr skilaboð. „Þau eru að hann sé ósnertanlegur og að þeir, sem falla í ónáð hjá honum, hafi ekkert vald yfir eigin örlögum,“ segir Loos. „Allar hans gerðir, hvort sem þær snúa að efnahagsmálum, varnarmálum eða eigin fjölskyldu, sýna hömlulausa misnotkun valds,“ bætir Loos við.
Pavin Chachavalpongpun, aðstoðarprófessor í suðurasískum fræðum við háskólann í Kyoto í Japan, segir í samtali við BBC að alls óvíst sé hvað bíði nú hjákonunnar fyrrverandi. „Við höfum enga hugmynd um það,“ segir Pavin og bætir við að ólíklegt sé að það verði nokkurn tímann gert opinbert.