Borgaryfirvöld í Feneyjum lokuðu Markúsartorginu, einum af helstu ferðamannastöðum borgarinnar í dag, eftir að sjór flæddi á ný yfir borgina. Lýsti ítalska ríkisstjórnin í dag yfir neyðarástandi vegna flóða í borginni og hefur jafnframt óskað eftir fjármagni úr opinberum sjóðum til að ná tökum á ástandinu. Á ríkisstjórnarfundi í gær var samþykkt að veita ríflega 20 milljónum evra til aðstoðar á svæðinu.
Gríðarleg flóð hafa verið í Feneyjum undanfarna daga og hefur sjór streymt inn á vinsæla ferðamannastaði í borginni, þar á meðal Markúsartorg. Nú þriðjudag var jafnframt greint frá því að sjávarstaða í borginni hafi ekki verið jafn há í borginni í rúma hálfa öld.
Luigi Brugano, borgarstjóri Feneyja, sagðist neyðast til að loka torginu til að tryggja öryggi almennings og forða hörmungum, en vindur var sterkur og útsog töluvert. Flóðahæðin í dag náði 1,54 metra hæð áður en hún tók að lækka á ný. Er það nokkru lægra en á þriðjudag, en telst engu að síður hættulega mikil. Torgið var svo opnað á ný seinni partinn.
„Við höfum eyðilagt Feneyjar,“ sagði Brugnano„Við erum að tala um skemmdir sem nema milljarði dollara og það er bara eftir síðast, ekki eftir daginn í dag.“ Greindi hann svo frá því að opnað hefði verið á söfnun fyrir þá sem vildu styðja lagfæringar á þeim skemmdum sem hafa orðið á borginni vegna flóðanna.
Fjárhagslegt tjón vegna flóðanna er ekki komið í ljós en talið er að það hlaupi á hundruðum milljóna evra.
Matteo Salvini, leiðtogi þingflokksins Bandalagið, bættist í dag í hóp þeirra stjórnmálamanna sem hafa gert sér ferð til Feneyja að skoða skemmdirnar.
Það gerði líka menningaráðherrann Dario Franceschini. Varaði hann við því að risavaxið verkefni væri framundan varðandi lagfæringar á skemmdunum. Sagði ráðherrann rúmlega 50 kirkjur hafa orðið fyrir skemmdum. „Að sjá þessa staði með eigin augum gefur miklu meiri tilfinningu fyrir hörmungunum en að sjá myndir í sjónvarpi,“ sagði Franceschini.
Forsætisráðherra Ítalíu, Giuseppe Conte, hefur þá lýst ástandinu sem „gríðarlegu höggi á hjarta landsins“, en hann ferðaðist til borgarinnar á miðvikudag.