Bandaríkjamenn gerðu loftárás á hershöfðingja í hernaðarsamtökunum Hashed al-Shaabi seint í kvöld, eða um klukkan 2 að staðartíma í Írak. Ríkissjónvarp Íraks greinir frá. Hashad al-Shaabi eru vopnaðar sveitir sem njóta stuðnings Írana.
Um sólarhringur er síðan herforinginn Qasem Soleimani var drepinn í loftárásum Bandaríkjamanna á Bagdad-flugvelli, en árásin var fyrirskipuð af Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Árásin sem átti sér stað rétt í þessu var gerð norður af höfuðborginni Bagdad en ekki liggur fyrir að hverjum árásin beindist. AFP-fréttastofan hefur eftir lögreglunni að árásin hafi beinst að bílalest hernaðarsamtakanna og að sex manns hafi látið lífið í árásinni.
Trump sagði í ávarpi í kvöld að hann hafi fyrirskipað að ráðist yrði á Soleimani þar sem hann hefði verið að undirbúa „yfirvofandi og illgirnislegar árásir“ á Bandaríkjamenn. Árásin hefði verið gerð til að stöðva stríð.
Hér má fylgjast með beinni textalýsingu The Guardian af þróun mála