Horst Seehofer, innanríkisráðherra Þýskalands, neitaði að taka í höndina á Angelu Merkel Þýskalandskanslara þar sem þau funduðu um málefni flóttafólks í morgun. Ráðherrann kveðst hættur að taka í hönd fólks vegna kórónuveirunnar.
Samkvæmt frétt BBC var hlegið þegar Seehofer beindi hendi Merkel frá sér þegar hún hugðist heilsa honum.
„Þetta var rétt,“ sagði Merkel og lyfti höndum upp í loft eftir „neitunina“.
Alls hafa verið tilkynnt 150 tilfelli kórónuveirusmits í Þýskalandi.