Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin skilgreinir nú útbreiðslu COVID-19-sjúkdómsins sem heimsfaraldur. Þetta kom fram á blaðamannafundi rétt í þessu.
„Stofnunin hefur verið að meta útbreiðslu sjúkdómsins og við erum mjög áhyggjufull, bæði vegna ógnvekjandi mikillar útbreiðslu og alvarleika, og einnig vegna ógnvekjandi skorts á aðgerðum,“ sagði Tedros Adhanom Ghebreysus, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, á fundinum.
„Við höfum því metið það svo að hægt sé að skilgreina COVID-19 sem heimsfaraldur.“