Yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar hefur séð sig knúinn til að minna ungt fólk á að það sé ekki ósigrandi í baráttunni gegn kórónuveirunni. Tedros Adhanom Ghebreyesus biðlaði í dag til ungs fólks að forðast óþarfa félagslíf.
„Ákvarðanir sem ungt fólk tekur geta verið spurning upp á líf eða dauða fyrir einhvern annan,“ sagði Ghebreyesus.
„Í dag er ég með skilaboð til unga fólksins: Þið eruð ekki ósigrandi. Þessi veira gæti haldið ykkur á sjúkrahúsi vikum saman, eða jafnvel drepið ykkur.“
Dauðsföll vegna kórónuveirunnar eru orðin ellefu þúsund talsins á heimsvísu og hafa 258 þúsund smitast.