Tæplega 1.900 dauðsföll af völdum kórónuveirunnar voru tilkynnt í Bandaríkjunum í gær en alls hafa rúmlega 20 þúsund látið lífið vestanhafs vegna kórónuveirufaraldursins.
Alls hafa rúmlega 530 þúsund greinst með veiruna í landinu; þar af 180 þúsund í New York-ríki.
Tilfellin á heimsvísu eru tæplega 1,8 milljónir og 108 þúsund hafa látist.
Anthony Fauci, forstöðumaður Ofnæmis- og smitsjúkdómastofnunar Bandaríkjanna, segir að samkvæmt spálíkönum virðist toppnum hafa verið náð í New York og nágrannaríkjum. Ástandið eigi hins vegar eftir að versna í öðrum fjölmennum ríkjum.
Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, sagði einnig að svo virtist sem veiran væri að ná hápunkti í New York en alls létust 783 í ríkinu síðasta sólarhringinn.