Hvíta húsið segir að fjölmiðlar hafi sýnt af sér ábyrgðarleysi þegar þeir tóku ummæli Donald Trump Bandaríkjaforseta um að rannsakað yrði hvort hægt væri að dæla sótthreinsivökva í fólk sem meðferð við kórónuveirunni úr samhengi.
Læknar vara við þessum hugmyndum forsetans og segja að þetta gæti reynst fólki banvænt.
Trump lagði einnig til hvort ekki væri hægt að beina útfjólubláum geislum á líkama sjúklinga með COVID-19. Sú hugmynd hans var strax slegin út af borðinu af lækni á fundinum með blaðamönnum í gær.
„Forsetinn hefur ítrekað sagt að Bandaríkjamenn eigi að ráðfæra sig við lækna varðandi meðferð við kórónuveirunni. Hann lagði áherslu á það í gær,“ sagði Kayleigh McEnany, blaðafulltrúi Hvíta hússins.
„Látið fjölmiðla um að taka forsetann af ábyrgðarleysi úr samhengi og sníða neikvæðar fyrirsagnir,“ bætti hún við.