Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir „mjög sterkar vísbendingar“ hafa komið fram um að kórónuveiran eigi uppruna sinn að rekja til rannsóknarstofu í Wuhan í Kína. AFP-fréttastofan greinir frá.
„Það eru mjög sterjar vísbendingar um að þar hafi þetta allt byrjað,“ sagði hann í þættinum This Week á ABC. Hann gagnrýndi einnig það hvernig Kínverjar hefðu tekist á við faraldurinn. Aðspurður vildi hann þó ekki segja til um það hvort veirunni hefði verið lekið viljandi út af rannsóknarstofunni eða það hefði verið fyrir slysni.
Í síðustu viku hótaði Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, yfirvöldum í Peking í Kína auknum tollum og sagðist hafa sannanir fyrir því að hægt væri að tengja kórónuveiruna við rannsóknarstofuna sem um ræðir.
Spurður hvort hann hefði séð eitthvað sem benti sterklega til þess að rekja mætti upphaf faraldursins til veirufræðistofnunar Wuhan, svaraði hann: „Já, það hef ég.“
Þegar blaðamenn þrýstu á hann að veita frekari upplýsingar um hvað það væri sem gerði hann svo vissan í sinni sök, sagði hann: „Ég get ekki sagt ykkur það.“
Trump sagði að bandarískar stofnanir væru að rannsaka hvernig veiran kom fyrst upp og hvað Kínverjar hafi gert til að koma í veg fyrir að hún breiddist út um heiminn. „Við munum fá mjög nákvæma greiningu á því hvað gerðist,“ sagði forsetinn og bætti við að hann fengi skýrsluna í hendurnar von bráðar.