Laumaði hægðalyfjum í matinn

Konan hlaut 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að laumast inn …
Konan hlaut 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að laumast inn á heimili fyrrverandi manns síns um nætur og lauma hægðalyfinu Laxoberal í matvörur og mjólk í ísskápnum sem gerði það að verkum að hann bjó við sífelld búkhlaup og magakveisur mánuðum saman. Ljósmynd/123apotek.no

Fyrrverandi eiginkona manns á sextugsaldri hlaut á föstudaginn 30 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm í Héraðsdómi Vestfold í Larvik í Suður-Noregi fyrir að hafa um nokkra hríð farið reglulega inn á heimili manns síns fyrrverandi, með lyklum sem hún enn hafði í fórum sínum, og laumað hægðalyfinu Laxoberal í mat og drykkjarvörur í ísskápnum í skjóli nætur.

Höfðu hjónin gengið gegnum erfiðan skilnað og konan haft horn í síðu mannsins um langt skeið. Maðurinn hafði aldrei átt við nein meltingartengd vandamál að stríða og vissi ekki hvaðan á hann stóð veðrið þegar hann fór skyndilega að þjást af sífelldri steinsmugu og þrálátum magaverkjum sem virtust engan endi ætla að taka.

Verkirnir hurfu á Spáni

„Ég varð miður mín. Var þetta eitthvað sem ég þyrfti að glíma við ævina á enda?“ sagðist maðurinn hafa spurt sjálfan sig við aðalmeðferð málsins á þriðjudaginn, eftir því sem Østlands-Posten greinir frá á læstri áskriftarsíðu sinni.

Greindi maðurinn frá því hvernig hann hefði reynt að sniðganga ýmsar matvörur í tilraunaskyni án þess að líðan hans breyttist til batnaðar. Tvær grímur tóku svo að renna á hann þegar hann brá sér í frí til Spánar í fyrrahaust og átti þar þrjár sælar vikur þar sem hvorki vottaði fyrir þúfnalúru né magakveisu. Um leið og hann kom aftur til Noregs hófst búkhlaupið hins vegar á ný.

Hann segist þá hafa tekið að gruna að eitthvað væri athugavert við matinn hans heima og eftir því sem árvekni hans jókst tók hann að veita því athygli að matur skipti stundum um stað í ísskápnum um nætur auk þess sem eitthvert torkennilegt sætt bragð var af mjólkinni.

Maðkur í mysunni

Þar með varð manninum ljóst að maðkur var í mysunni, bókstaflega kannski, svo hann setti upp eftirlitsmyndavél í stofunni. Sá hann svo á upptökunum hvar kona hans fyrrverandi laumaðist inn á heimilið á nóttunni og var þá engum blöðum að fletta.

Hann tilkynnti lögreglu um málið sem þegar handtók konuna. Játaði hún brot sín undanbragðalaust að hluta og var ákærð fyrir að eitra fyrir manni sínum. Fyrir héraðsdómi játaði hún aðeins að hafa farið þrisvar eða fjórum sinnum inn til mannsins fyrrverandi og sett nokkra dropa af Laxoberal í meðal annars rauðbeðusalat og mjólk í ísskápnum.

Héraðsdómur taldi líklegt að háttsemi konunnar hefði staðið yfir allt frá því vorið 2018 þar sem meltingarvandamál mannsins hófust um það bil þá, en ekki tókst að færa sönnur á þetta svo hafið væri yfir tvímæli.

Skilnaðurinn ákaflega þungbær

Ákærða sagði sér til málsbóta fyrir réttinum að skilnaðurinn hefði verið henni ákaflega þungbær og hún ekki getað á sér heilli tekið. Hefur hún verið í veikindafríi frá starfi sínu og notið aðstoðar heilbrigðisstarfsfólks.

Maður hennar fyrrverandi tjáði héraðsdómara að honum þætti konan hafa tekið út sína refsingu gegnum píslargöngu sína. „Ég sé það núna þegar ég lít til baka að við leystum þennan skilnað ekki nægilega vel af hendi, hann hefur verið henni þyngri raun en ég taldi í fyrstu,“ viðurkenndi hann.

Svo sem í upphafi er getið þótti refsing konunnar hæfilega ákveðin 30 daga skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára.

NRK

VG

ABC-nyheter

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert