Heilbrigðisráðherra Nýja-Sjálands hefur sagt af sér embætti eftir að hafa í tvígang brotið reglur um útgöngubann í landinu sem voru í gildi vegna kórónuveirunnar.
David Clark kallaði sjálfan sig „hálfvita“ í apríl eftir að hann braut reglur um útgöngubann í landinu þegar hann keyrði með fjölskyldu sína á ströndina síðustu helgina í mars. Hann viðurkenndi að aksturinn væri hreint og klárt brot á útgöngubanni sem sett var á í landinu 25. mars.
Hann bauðst til að segja af sér í apríl þegar hann viðurkenndi brot sitt fyrst en Jacinda Ardern, forsætisráðherra landsins, hafnaði afsögn hans vegna stöðunnar í tengslum við kórónuveirufaraldurinn.
Clark tilkynnti afsögn sína á blaðamannafundi í dag og er ákvörðunin alfarið tekin af honum sjálfum og hefur Ardern samþykkt afsögnina. Clark segir að seta hans í ríkisstjórn hafi haft truflandi áhrif á störf hennar. Chris Hipkins menntamálaráðherra mun sinna störfum heilbrigðisráðherra þar til þingkosningar fara fram í september.
Stjórnvöldum á Nýja-Sjálandi hefur verið hrósað fyrir að bregðast við útbreiðslu kórónuveirunnar af krafti. 1.528 tilfelli hafa greinst í landinu og 22 hafa látið lífið. Öllum samkomutakmörkunum var aflétt í síðasta mánuði og fullyrt að landið væri laust við kórónuveiruna. Tvö smit greindust hins vegar um miðjan júní.