Alexander Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands, ætlar að ræða við Vladimir Pútín, forseta Rússlands, vegna mótmælanna sem hafa staðið yfir í landinu í kjölfar forsetakosninga um síðustu helgi.
„Árásargirnin í garð Hvíta-Rússlands heldur áfram. Við þurfum að hafa samband við Pútín, forseta Rússlands, til að ég geti rætt við hann núna,“ sagði Lúkasjenkó á fundi með ríkisstjórninni.
„Vegna þess að það er ekki bara verið að ógna Hvíta-Rússlandi.“
Þúsundir manna hafa gengið um götur Hvíta-Rússlands og mótmælt yfirlýsingu Lúkasjenkó um að hann hafi unnið kosningarnar með 80 prósentum atkvæða.
Leiðtogi hvítrússnesku stjórnarandstöðunnar Svetlana Tikhanovskaya, sem segist hafa borið sigur úr býtum í kosningunum í landinu, hefur hvatt til frekari mótmæla gegn Lúkasjenkó um helgina.
Hvíta-Rússland tengist Rússlandi meira en nokkurri annarri þjóð og mynda þær „sambandsríki“ þar sem samvinna ríkir í efnahags- og varnarmálum.
„Vernd Hvíta-Rússlands í dag snýst um að vernda allt svæðið, sambandsríkið og að sýna öðrum fordæmi,“ sagði Lúkasjenkó.