Fjórir voru handteknir í París í gærkvöldi í tengslum við morð á kennara sem var afhöfðaður fyrir utan skólann síðdegis í gær. Kennarinn hafði sýnt skopmyndir af Múhammeð spámanni í kennslustund.
Samkvæmt frétt AFP voru hin handteknu skyld árásarmanninum og hann sagður 18 ára Tsjetsjeni. Þar kemur einnig fram að foreldrar ódæðismannsins létu í ljós óánægju sína við skopmyndasýningu kennarans.
Árásarmaðurinn flúði eftir ódæðið en lögregla skaut hann til bana.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti sagði morðið hryðjuverk.