Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi sýnt að hann sé „óhæfur til að taka starfið alvarlega“.
Þessu greindi hann frá á sínum fyrsta opinbera kosningafundi fyrir Joe Biden, forsetaframbjóðanda demókrata, en forsetakosningarnar fara fram þriðja nóvember.
President Trump has treated the presidency "like a reality show that he can use to get attention," former President Obama says while stumping for Joe Biden in Philadelphia.
— CNN (@CNN) October 21, 2020
"But the thing is, this is not a reality show. This is reality." https://t.co/OxMqVe0Pun pic.twitter.com/WTDVU9sHuE
„Þetta er ekki raunveruleikaþáttur. Þetta er raunveruleikinn,“ sagði Obama í borginni Fíladelfíu í Pennsylvaníu, sem er eitt af lykilríkjunum í kosningabaráttunni.
„Við hin höfum þurft að lifa með afleiðingunum af því að hann er óhæfur til að taka starfið alvarlega,“ bætti hann við.
Obama hélt áfram og sagði lýðræðið ekki ganga upp ef „leiðtogar ljúga hvern einasta dag“. Hvatti hann jafnframt stuðningsmenn Bidens til að sofna ekki á verðinum þrátt fyrir að skoðanakannanir hafi verið hliðhollar demókratanum.