Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, er hvergi af baki dottinn í viðleitni sinni að sannfæra fólk um kosningasvindl í bandarísku forsetakosningunum. Nú fyrir skömmu birti hann 46 mínútna ræðu þar sem hann fer yfir ásakanir repúblikana vegna framkvæmdar forsetakosninganna.
Sjá má ræðu Trump í meðfylgjandi myndbandi.