„Það sem er að gerast er að það er verið að mótmæla því að réttkjörinn maður taki við völdum sem er gríðarlega alvarlegt,“ segir Júnía Lin Jónsdóttir sem búsett er í Washington-umdæmi í Bandaríkjunum, um óeirðir sem spruttu upp fyrr í kvöld þegar múgur, hliðhollur Donald Trump Bandaríkjaforseta, braut sér leið inn í þinghús Bandaríkjaþings.
Júnía segist hafa fengið skilaboð frá borgarstjóra Washington, Muriel Bowser, fyrr í kvöld um að útgöngubann hafi verið sett á þangað til í fyrramálið. „Það var svona staðfesting um að eitthvað stórt væri í gangi,“ segir Júnía.
Múgur braut sér leið inn í þinghúsið á meðan sameiginlegur þingfundur fulltrúa- og öldungadeildarinnar stóð yfir, en til stóð að staðfesta kjör Joe Biden, verðandi forseta. Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs hefur einn verið skotinn inni í þinghúsinu. AFP hefur eftir þingmönnum að um „valdarán“ sé að ræða.
Júnía segist hafa verið í grennd við Capitol Hill fyrr í dag. Hana hafi aldrei grunað hvað væri í vændum.
„Við búum inni í Washington og erum svona 10 mínútur að keyra að Capitol Hill. Ég var nánast þarna í morgun að kenna. Ég held að það hafi engin átt von á því að þetta yrði svona stórt. Borgarstjórinn átti ekki von á því heldur held ég, hún sendi þjóðvarðliðið fyrir hönd DC óvopnað í morgun til þess að reyna að magna ekki ástandið upp,“ segir Júnía.
Þingmenn vestanhafs, ekki síst þingmenn demókrata, hafa sakað Donald Trump Bandaríkjaforseta um að hvetja til ofbeldisverka á mótmælafundi fyrr í dag.
„Það voru skipulögð mótmæli í morgun og mótmælafundur sem Trump mætti á og hvatti liðið til að sýna bakbeinið og sýna fólki að það væri alvara á bak við þetta. Hann var í raun bæði beint og óbeint að hvetja til ofbeldis,“ segir Júnía, en Trump hefur ítrekað haldið því fram án sannana að víðtækt kosningasvindl hafi leitt til sigurs Joe Biden í forsetakosningunum sem fram fóru í nóvember. „En það bjóst held ég enginn við að hann myndi segja „hey, farið inn í þinghúsið og komið í veg fyrir að hann verði staðfestur,“ segir Júnía.
Mikið hefur verið um mótmæli í Washington og víðar í Bandaríkjunum síðustu mánuði, ekki síst eftir að George Floyd, svartur karlmaður, lést í varðhaldi lögreglu þegar lögregluþjónn kraup á hálsi hans í fleiri mínútur í maí síðastliðnum. Júnía segir mótmælin nú þó vera annars eðlis.
„Við höfum fengið tilkynningu í símana svo oft síðasta árið, út af Black Lives Matter, þetta er ekki í fyrsta sinn sem það er sett á útgöngubann og það var aldrei áfall, það var svo margt að gerast, en þetta er allt öðruvísi núna en það var áður. Þetta er komið á annað stig, að ráðast á þinghúsið, það er bara valdarán. Þegar Black Lives Matter-mótmælin voru í gangi voru ekki allir vopnaðir. Á þeim tíma vorum við líka svo vön því að vera með útgöngubann, líka út af Covid-19 og það var bara hluti af pakkanum,“ segir Júnía.