Hvort var verra: innrásin í þinghúsið í Washington eða samstilltar aðgerðir bandarísku tæknirisanna um að loka á Bandaríkjaforseta og vega að tjáningarfrelsinu?
Það er að minnsta kosti almenn samstaða um að vanstilltustu stuðningsmenn Trumps fóru langt yfir strikið en aftur á móti voru margir sem gátu ekki hamið gleði sína og hrifningu þegar Twitter, Facebook og önnur stórfyrirtæki tæknigeirans settu Trump í straff.
Þegar upp er staðið held ég að ákvörðun bandarísku samfélagsmiðlanna muni valda lýðræði og frelsi á heimsvísu miklu meira tjóni en árásin á þinghúsið. Þeir sem halda að það bæti heiminn ef vitleysingum, skúrkum, skítseiðum og fólki með rangar skoðanir er meinað að tjá sig átta sig ekki á út á hvað tjáningarfrelsið gengur, og hversu auðvelt það er að fara út af sporinu þegar valdamiklir aðilar – stjórnvöld eða fyrirtæki í einokunarstöðu – taka til við að ákveða hvað má og má ekki segja.
Rússneski stjórnarandstöðuleiðtoginn Alexey Navalny benti á hættuna í færslu sem fékk að birtast á Twitter: „Þetta skapar fordæmi sem andstæðingar tjáningarfrelsisins um allan heim geta nýtt sér,“ skrifaði hann. „Næst þegar þeir þurfa að þagga niður í einhverjum geta þeir einfaldlega svarað: þetta er hið eðlilegasta mál og meira að segja Trump var hent út af Twitter.“
Með því að loka á Trump er hætta á að Twitter hafi gert hann að píslarvotti í augum bandarískra hægrimanna.
Fréttaskýring Ásgeirs Ingvarssonar um tjáningarfrelsið birtist fyrst í ViðskiptaMogganum en lesa má hana í heild sinni hér á mbl.is í vefútgáfu Morgunblaðsins.