Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist myndu snúa aftur með einhverjum hætti áður en hann gekk um borð í forsetaflugvélina Air Force One sem flýgur nú með hann til Flórída.
„Þetta hafa verið ótrúleg fjögur ár,“ sagði hann í stuttu ávarpi til starfsfólks, stuðningsmanna og fjölskyldu sinnar á Andrews-herflugvellinum fyrir utan Washington.
„Við höfum áorkað svo miklu saman,“ bætti hann við. „Ég mun alltaf berjast fyrir ykkur.“
Hann óskaði nýju ríkisstjórninni heilla og árangurs, án þess þó að minnast á arftaka sinn með nafni.
„Það var minn mesti heiður og mín mestu forréttindi að vera forseti ykkar,“ sagði forsetinn að lokum. „Eigið gott líf.“
Trump verður í Flórída þegar Biden sver embættiseið við innsetningarathöfn á tröppum þinghússins á hádegi að staðartíma, klukkan 17 að íslenskum tíma, í stað þess að vera viðstaddur athöfnina eins og hefð er fyrir.
Er hann fyrsti forsetinn í yfir 150 ár til að hunsa athöfnina.