Samþykkja bóluefni AstraZeneca

Stella Kyriakides, sem stýrir heilbrigðismálum í framkvæmdastjórn ESB, á blaðamannafundi …
Stella Kyriakides, sem stýrir heilbrigðismálum í framkvæmdastjórn ESB, á blaðamannafundi í dag. AFP

Lyfja­stofn­un Evr­ópu hef­ur veitt leyfi fyr­ir notk­un bólu­efn­is AstraZeneca fyr­ir fólk eldra en átján ára. Ætla má að það verði gert í kjöl­farið hér á landi nokkuð fljót­lega.

For­stjóri Lyfja­stofn­un­ar sagði í sam­tali við mbl.is fyrr í dag, að ná­ist það ekki í dag verði það von­andi gert á morg­un.

„Það er fólk á vakt hjá okk­ur í dag og fram á kvöld. Ef þetta næst ekki í dag þá verðum við að halda áfram á morg­un. Þetta fer allt eft­ir því hvaða upp­lýs­ing­ar koma frá Lyfja­stofn­un Evr­ópu og hvenær, það eru þær tíma­setn­ing­ar sem við erum að vinna með,“ sagði for­stjór­inn Rúna Hauks­dótt­ir.

Standa í deil­um á sama tíma

Samþykki stofn­un­ar­inn­ar kem­ur á sama tíma og Evr­ópu­sam­bandið stend­ur í harðvítug­um deil­um við AstraZeneca um ákvæði samn­ings þeirra í mill­um.

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins birti fyrr í dag rit­skoðaða út­gáfu af samn­ingn­um, í von um að sanna að fyr­ir­tækið hafi brotið í bága við ákvæði samn­ings­ins um af­hend­ingu bólu­efn­is við kór­ónu­veirunni.

Fram­kvæmda­stjórn­in hef­ur brugðist illa við því að fram­leiðslu­örðug­leik­ar bitni ein­ung­is á af­hend­ingu bólu­efn­is til sam­bands­ins en ekki til Bret­lands, en stjórn­völd þar í landi sömdu við fram­leiðand­ann þrem­ur mánuðum á und­an sam­band­inu.

Notaði fyr­ir­tækið tím­ann til að leysa vanda­mál við fram­leiðslu og af­hend­ingu frá verk­smiðjum sín­um í Bretlandi. Vanda­mál við fram­leiðslu í Belg­íu hafa hins veg­ar valdið töf­um á af­hend­ingu til ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert