Bandaríski útvarpsmaðurinn umdeildi, Rush Limbaugh, er látinn, 70 ára að aldri. Eiginkona hans, Kathryn Adams, greindi frá andlátinu í útvarpsþætti hans í dag en Limbaugh glímdi við lungnakrabbamein.
Limbaugh, sem fæddist 12. janúar 1951, var í gegnum tíðina áhrifamikill álitsgjafi á hægri væng bandarískra stjórnmála og stjórnaði eigin útvarpsþætti í áraraðir.
Þrír forsetar komu sem gestir í þátt hans og Limbaugh hlaut frelsisverðlaun Bandaríkjaforseta í fyrra. Hann var ákafaur stuðningsmaður Donalds Trumps, fyrrverandi forseta.
Limbaugh var ávallt umdeildur en í umfjöllun BBC kemur fram að hann hafi verið rasisti, hommahatari og afneitað loftslagsbreytingum.
Limbaugh tjáði sig að minnsta kosti einu sinni um málefni tengd Íslandi en hann fullyrti að með eldgosinu í Eyjafjallajökli í apríl 2010 hefði Guð látið reiði sína í ljós vegna breytinga demókrata á heilbrigðiskerfinu vestanhafs.