Yfir hálf milljón manna hefur nú látið lífið af völdum Covid-19 í Bandaríkjunum.
Þetta kemur fram á tölfræðivefnum Worldometer. Hátt í 29 milljónir manna hafa smitast af veirunni í landinu.
Næstflestir í heiminum hafa látist í Brasilíu, eða tæplega 250 þúsund manns. Samanlagt hafa tæplega 2,5 milljónir manna látist í heiminum öllum úr Covid-19.
Joe Biden Bandaríkjaforseti varaði við því í síðasta mánuði að „vel yfir“ 600 þúsund manns gætu dáið af völdum kórónuveirunnar í landinu.
„Þetta er hræðilegt. Þetta er sögulegt. Við höfum ekki séð nokkuð sem er nálægt þessu í vel yfir eitt hundrað ár,“ sagði Anthony Fauci, sóttvarnalæknir Bandaríkjanna, og átti þar við spænsku veikina árið 1918.
„Þetta er sláandi þegar maður horfir á tölurnar, þetta er nánast ótrúlegt en satt,“ bætti Fauci við.
Eftir að greint var frá fyrsta dauðsfallinu í Bandaríkjunum af völdum Covid-19 í febrúar í fyrra liðu um þrír mánuðir þangað til 100 þúsund manns höfðu látist í fyrstu bylgjunni, þar sem New York varð verst úti.