Álag á tékkneska heilbrigðiskerfið fer ört vaxandi vegna kórónuveirufaraldursins og nálgast nú hámarksgetu kerfisins.
Hvergi í heiminum hafa greinst fleiri ný tilfelli á hverja hundrað þúsund íbúa en í landinu. Og aðeins í nágrannaríkinu Slóvakíu hafa hlutfallslega fleiri látist af völdum veirunnar á sama tímabili.
Ríkisstjórnin, sem náði að hemja fyrstu bylgju faraldursins snemma, hefur frá síðasta sumri þurft að eiga við fleiri og fleiri bylgjur smita í landinu sem telur um 10,7 milljónir manna.
„Við getum engan veginn haldið uppi núgildandi stöðlum í heilbrigðisþjónustu,“ sagði aðstoðarheilbrigðisráðherrann Vladimir Cerny við blaðamenn í dag.
Benti hann á að einnig hefði hægst verulega á annarri heilbrigðisþjónustu.
„Kerfið í heild sinni er að nálgast mörkin.“
Alls eru 1.300 manns á gjörgæslu vegna sjúkdómsins í Tékklandi. Þar af eru 660 í öndunarvél. Fleiri en 1,16 milljónir tilfella hafa greinst frá upphafi faraldursins og nær tuttugu þúsund látist.