Fulltrúi Hvíta hússins, Karine Jean Pierre, hefur lýst því yfir að Joe Biden Bandaríkjaforseti sé við góða heilsu þrátt fyrir að hafa hrasað þrisvar á leið um borð í flugvél forsetans. Atvikið náðist á myndband og voru fjölmiðlar vestra ekki lengi að gera sér mat úr efninu, enda ekki í fyrsta skipti sem heilsufar forsetans er til umfjöllunar. Segir frá þessu á fréttavef Reuters.
Á myndbandinu sést Biden hrasa þrisvar í tröppunum en ekki er útlit fyrir að honum hafi orðið meint af. „Það var mjög vindasamt á svæðinu en hann er við hestaheilsu,“ sagði Jean-Pierre í samtali við fjölmiðla, sem inntu hana eftir svörum í kjölfar hrakfallanna.
Sjón er sögu ríkari: