Loftárásir Ísraelshers, sem lét sprengjum rigna yfir Gaza-svæðið í nótt, var sú mesta síðan átök hófust á milli þeirra og palestínskra skæruliða. Átökin sem hafa staðið yfir í fimm daga hafa orðið 119 Palestínumönnum og 8 Ísraelum að bana og virðast engan enda ætla að taka.
Ofbeldisbylgja gengur einnig yfir innan Ísraels en samkvæmt breska ríkisútvarpinu hafa brotist út slagsmál á milli fylkinga gyðinga og araba innan í landinu. Forseti landsins hefur varað við að borgarastyrjöld gæti brotist út ef ekkert yrði gert. Varnarmálaráðherra Ísraels, Benny Gantz, hefur fyrirskipað að veita öryggissveitum liðsauka til þess að bæla niður óróann í landinu.
Lögreglan í Ísrael hefur verið ásökuð um að líta framhjá ofbeldi gegn íbúum Ísraels af arabískum ættum. Talsmenn lögreglunnar neita þessum ásökunum og segir að þessir hópar beri sjálfir ábyrgð á mestum hluta ofbeldisins.
Ísraelsher skaut fyrr í dag viðvörunarskotum í átt að mótmælendum sem fóru inn á landssvæði Ísraels frá Líbanon í leyfisleysi til þess að sýna stuðning við málstað Palestínumanna. Samkvæmt Ísraelsher höfðu mótmælendurnir skemmt landamæragirðingu á milli ríkjanna og kveikt eld áður en þeir hurfu aftur til Líbanon.
Forsætisráðherra Ísraels, Benjamín Netanjahú hefur lýst því yfir að heraðgerðir Ísraels gegn palestínskum skæruliðum muni halda áfram eins lengi og þess krefst. Þetta sagði hann í tilkynningu sem var birt á Twitter í morgun. Einn af aðalráðgjöfum Netanjahú hefur jafnframt lýst því yfir að ekki sé hægt að binda enda á átökin án þess að binda enda á Hamas-samtökin.
Aðalritari Sameinuðu þjóðanna António Guterres hefur beðið báðar fylkingar um að binda enda á átökin sem fyrst. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundar á sunnudaginn um átökin en upphaflega stóð til að funda í dag.