Heilbrigðisyfirvöld í Víetnam hafa uppgötvað nýtt afbrigði kórónuveirunnar sem berst hratt í andrúmslofti og sameinar í raun þau tvö afbrigði sem til þessa hafa verið kennd við Indland og Bretland.
Yfirvöld eiga í erfiðri baráttu við útbreiðslu faraldursins í landinu, þar á meðal í stórborgunum Hanoi og Ho Chi Minh-borg.
Fleiri en 6.800 tilfelli og 47 dauðsföll hafa verið skráð innan landamæra Víetnam. Meirihluti þeirra hefur átt sér stað síðan í apríl, enda höfðu stjórnvöld lengst af góð tök á útbreiðslunni sem vöktu athygli víða utan landsteinanna.
„Styrkur veirunnar í hálsvökvanum eykst fljótt og dreifist mjög sterklega í nærumhverfið,“ segir heilbrigðisráðherrann Nguyen Thanh Long í tilkynningu.
Hann tók ekki fram hversu mörg tilfelli þessa afbrigðis hefðu greinst.
Í kjölfar nýjustu smitbylgjunnar í landinu hafa stjórnvöld gripið til hertra ráðstafana til að koma í veg fyrir samkomur fólks, ferðir þess og ýmis viðskipti.