Kínverskir dómstólar hafa dæmt Michael Spavor, kanadískan athafnamann, til ellefu ára fangelsis fyrir njósnir. Spavor var handtekinn árið 2018 ásamt fyrrverandi erindreka Kanada, Michael Kovrig.
Í frétt BBC segir að dómurinn muni reyna á nú þegar samband Kínverja og Kanadamanna er stirt.
Mögulega sé verið að setja þrýsting á Kanadamenn vegna fyrirhugaðs framsalssamnings Meng Wanzhou, hátt setts stjórnanda kínverska tæknirisans Huawei, sem er í haldi í Kanada.
Kínverjar hafa verið gagnrýndir fyrir að nota Spavor og Kovrig sem skiptimynt í framsalssamningnum og eru Kínverjar sagðir stunda „gísla-erindrekstur“ (e. hostage diplomacy).
Í yfirlýsingu fyrr í dag frá dómstóli í Dandong-héraði segir:
„Fyrir glæpi sína, njósnir og ólöglega meðferð ríkisleyndarmála erlendis er Spavor dæmdur í 11 ára fangelsi og verða fjármunir og aðrar eigur hans gerðar upptækar að andvirði 50 þúsund yuan (974 þúsund krónur).
Ekki segir í yfirlýsingunni hvenær Spavor verði vísað úr landi, en vanalega vísa kínversk stjórnvöld ekki föngum úr landi fyrr en eftir að þeir hafa afplánað dóma sína.
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, segir að dómurinn sé „algjörlega óásættanlegur og óréttlátur“.
„Þessi dómur yfir Spavor kemur í kjölfar tveggja og hálfs árs langs gæsluvarðhalds á ískyggilegum grundvelli, skorts á gegnsæi í lagaumhverfi þessa máls og loks réttarhalda sem uppfylla ekki næstum því minnstu kröfur sem gerðar eru með alþjóðalögum,“ sagði Trudeau í yfirlýsingu um málið.
Kínverjar hafa stundað því sem hér er lýst undanfarin ár, að taka Kanadabúa fasta, að því er virðist að tilefnislausu, og saka þá um uppdiktaða glæpi. Svo langt hefur framferði farið að fallið hafa dauðadómar yfir Kanadabúum.
Til að mynda hlaut málskotsbeiðni Kanadamannsins Lloyd Schellenberg ekki brautargengi fyrir kínverskum dómstólum nýverið og stendur því dauðadómur yfir honum frá því áður.
Meira að segja var það svo að Schellenberg var upphaflega dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir meint fíkniefnasmygl, en svo þegar hann gerði sig líklegan til að áfrýja ákváðu kínverskir dómstólar að dómurinn væri of vægur og því var dómurinn þyngdur í dauðadóm.
Lögmaður Schellenberg segir að engin sönnunargögn hafi verið borin undir dómara í máli hans og hann segir einnig að það hafi ekki verið nein tilviljun að dómur hans hafi verið þyngdur, einmitt á meðan viðræður Kínverja og Kanadamanna um framsal áðurnefnds Mengs stóð sem hæst.