Þær þvinganir sem Vesturlönd hafa gripið til gegn Rússlandi hafa haft umtalsverð áhrif á efnahag landsins.
Þetta sagði fjármálaráðherra Þýskalands, Christian Lindner, á blaðamannafundi í dag. Tók hann fram að G7-ríkin veltu nú fyrir sér frekari aðgerðum til að svara innrás rússneska hersins í Úkraínu, en fjármálaráðherrar ríkjanna komu saman til fundar í dag.
Þvinganir „hafa þegar haft gífurleg áhrif á fjármagnsmarkaði og gjaldeyrinn,“ sagði ráðherrann, en Þýskaland fer nú með formennsku í ríkjahópnum.
Að hans sögn skiptust fjármálaráðherrarnir á tillögum að því hvernig hægt væri að beita Rússland meiri þvingunum. Bætti hann við að ákvörðun um þær yrði tekin á næstu dögum.