Elon Musk mun ekki taka sæti í stjórn Twitter, að sögn forstjóra samfélagsmiðilsins.
Innan við vika er síðan tilkynnt var að Musk, sem er forstjóri Tesla og SpaceX, tæki sæti í stjórninni eftir að hann keypti stóran hlut í Twitter og varð um leið stærsti hluthafi fyrirtækisins.
„Elon hefur ákveðið að taka ekki sæti í stjórninni,“ sagði Parag Agrawal, forstjóri Twitter.
„Ég tel að þetta sé fyrir bestu,“ bætti hann við en Musk átti að verða hluti af stjórninni á laugardaginn.
Musk, sem er ríkasti maður heims, er með yfir 80 milljónir fylgjenda á Twitter. Í síðustu viku greindi hann frá því að hann hafi keypt 73,5 milljónir hluta í Twitter, eða 9,2%.
Hlutabréf í samfélagsmiðlinum hækkuðu um rúm 25% í kjölfarið.
Elon has decided not to join our board. I sent a brief note to the company, sharing with you all here. pic.twitter.com/lfrXACavvk
— Parag Agrawal (@paraga) April 11, 2022