„Annar kafli stríðsins er hafinn,“ sagði Andriy Yermak, starfsmannastjóri úkraínska forsetaembættisins í dag um stórsókn Rússa inn í Donbas-héruðin í austur Úkraínu.
Bandarísk yfirvöld munu í dag funda með bandamönnum sínum til þess að ræða stöðuna.
Hluta af svæði Donbas er stjórnað af aðskilnaðarsinnum sem eru hliðholl rússneskum stjórnvöldum.
Seint í gær staðfesti Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, að rússneskar hersveitir hafi byrjað barágttuna um Donbas-héruðin en hana hafi þær undirbúið í langan tíma.
„Það skiptir ekki máli hversu margir rússneskir hermenn mæta, við munum berjast. Við munum verja okkur,“ sagði Selenskí.
Úkraínsk yfirvöld tilkynntu það í dag að enn hafi ekkert samkomulag náðst við Rússa um að flytja óbreytta borgara frá Úkraínu með öruggum hætti. Er um að ræða þriðja daginn í röð sem það hefur ekki verið hægt.